Hampiðjan hlaut Íslensku sjávarútvegsverðlaunin á dögunum fyrir bestu nýju vöruna sem kynnt var á sýningunni/IceFish í Fífunni í Kópavogi.
Verðlaunin voru veitt fyrir ljósleiðarakapalvindu sem er sérhönnuð fyrir ljósleiðarakapalinn DynIce Optical Data og hefur verið í þróun síðustu misserin.
Naust Marine tók þátt í þróunarvinnu vindunnar sem var smíðuð hjá Naust Marine á Spáni í samstarfi við Hampiðjuna.
Á vindunni er tromla með dráttarspili sem heldur við kapalinn svo átakið inn á hana er ætíð jafnt, eða um 800 kg. Það kemur í veg fyrir að kapallinn grafist niður í lögin fyrir neðan og klemmist og ljósleiðarinn brotni. Einnig er á henni armur sem raðar ljósleiðarakaplinum inn á tromluna af mikilli nákvæmni.
Þó að vindan sé fyrst og fremst hönnuð fyrir fiskveiðar, nýtist hún einnig í öðrum atvinnugreinum þar sem flytja þarf mikið gagnamagn af miklu dýpi í stjórnstöðvar ofansjávar. Þessi búnaður mun gegna stóru hlutverki í fiskveiðum framtíðarinnar því þegar upplýsingar frá veiðarfærum og upp í brú eru nær ótakmarkaðar má stýra veiðum mun betur.
Naust Marine óskar Hampiðjunni innilega til hamingju með verðlaunin og þakkar jafnframt fyrir tækifærið til samstarfs í þessu magnaða verkefni.